Símarómur® app icon

Símarómur®

Grammatek Ehf

★ 0.00 ratingsEducationFree

Description

Símarómur® er talgervilsapp fyrir íslensku. Raddir Símaróms eru fyrstu íslensku iOS kerfisraddirnar, sem þýðir að öll forrit sem geta notað talgervilsrödd stýrikerfisins geta nú notað íslenskan talgervil, þar með talin aðgengisforrit Apple, VoiceOver. Með því að virkja Spoken Content (iOS 18 og eldri) eða Read & Speak (frá og með iOS 26) getur Símarómur lesið íslenskar vefsíður, tölvupóst og annað efni á íslensku. Einnig er hægt að virkja Símaróm handfrjálst gegnum Siri með skipuninni speak screen. Símarómur inniheldur notendaorðabók, þar sem hægt er að stýra framburði stakra orða. Þessari orðabók er hægt að deila milli tækja, til að mynda með Air drop virkni. Notendaskilmálar: https://www.apple.com/legal/internet-services/itunes/dev/stdeula/ !! Vinsamlegast athugið að Símarómur virkar ekki með aðgengisöppum á iOS 26.0 og 26.1! Á iOS 26.2 virkar Símarómur með VoiceOver, Accessibility Reader og öppum þriðju aðila sem nota talgervil kerfis, en EKKI enn sem komið er með Speech Controller. Áfram er unnið að því að Símarómur og aðrir talgervlar þriðju aðila virki einnig í Speech Controller.