72.0
5 votes - Productivity - First release: 2020-11-13T08:00:00Z
Screenshots
Description - 4+
Embla er nýtt og spennandi app fyrir snjallsíma. Þú getur talað við Emblu á íslensku, spurt hana spurninga og hún svarar um hæl. Hún skilur ýmsar algengar spurningar og svarar þeim eftir bestu getu. Með tíð og tíma mun hún læra að svara fleiri tegundum spurninga.
Eins og stendur ræður Embla við fyrirspurnir um fólk og fyrirbæri, veður, strætósamgöngur, dagsetningar, landafræði, fréttir, sjónvarpsdagskrá, opnunartíma verslana, einföld reikningsdæmi og margt fleira.
Embla er gefin út af íslenska sprotafyrirtækinu Miðeind ehf. Hún er ókeypis til notkunar, inniheldur engar auglýsingar og safnar ekki persónuupplýsingum. Virkni Emblu er byggð á opna máltæknihugbúnaðinum Greyni.